-->


Uxi
Kvasis dreyri
Rokk
Robert Fisk
Vefstólar
Eldra efni
El Sur
Tinni
Sögur
Baul

Skrifa/Sign FREE GUESTBOOKS Skoða/View


Fluga

Stöngin dugar, styrk er hönd,
stefnu hugur metur.
Uxi flugu í laxa lönd
litskrúðuga setur.

19. ágúst 2005


Paparazzi á Glaumbar

DV 17. mars








Karlmann hrelldi kona á bar
kennd við paparazzi.
Ástþór vildi ekki par
una þessu skassi.

Fljótráð vildi festa á mynd
friðar kenndan boða.
Drygði hún þar dauðasynd,
sér daman fór að voða.

Okkar tíma Íslandssól
eitthvað fór að vola
er Ástþór hennar tæki og tól
tókst að brjóta í mola.

17. mars 2005



desember 2004
Andspyrnan í Írak.

Úthald járnfrúarinnar og Tóní

Fréttablaðið, febrúar 2003
Viskí og vítamín

MARGRÉT THATCHER
Járnfrúin var þekkt fyrir að þurfa lítinn sem engan svefn.

LONDON, AP
Þegar mikið reyndi á í stjórnartíð Margrétar Thatcher notaði járnfrúin viskí og vítamín til að halda sér gangandi, segir Cynthia Crawford, fyrrum aðstoðarkona hennar, í viðtali ...

Stundum gróf og stundum fín,
styrkt með járni bauga hlín.
Vandist fljótt á vítamín.
Viskí drakk hún eins og svín.

Núna ríkir verkamannsins von,
vænsti piltur hress og glaður.
En samt er Tony Blair í Babýlon
breskur ójafnaðarmaður.

4. mars 2003


Gangnaraunir

DV, Þri. 17. september
Lauk göngum fótbrotinn

Guðmundur, sem var austasti maðurinn í göngunum og gekk Víðidalinn, lenti með hest sinn niður í keldu framarlega í dalnum, svokallaða Kjaftalaut, þar sem Skagfirðingar skipta göngum. Hesturinn lenti ofan á Guðmundi og kramdi fót hans illa.

Hans verður án efa sárt saknað í smalamennskunni í haust, enda, að sögn bænda þar um slóðir, með magnaðri smalamönnum, vel ríðandi og með góðan hund sér til aðstoðar. Framganga Guðmundar í göngunum að þessu sinni þykir hörð og ekki neytti hann neins í göngunum til að deyfa verkina. Gangnapeli hans var ósnertur og þáði hann ekki boð frá öðrum gangnamönnum.



Undan Gvendi hrossið hnaut
þótt hann sé fárra maki.
Kappinn oní Kjaftalaut
kastaðist af baki.

18. september 2002


Heimanám

Erlent | Morgunblaðið | 5.9.2002 | 12:07
Vill klám í sænska ríksissjónvarpið til að fjölga fæðingum

Teres Kirpikli, þingmaður kristilegra demókrata í Svíþjóð, segir alvarlegan samdrátt hafa orðið í fæðingum þar í landi og leggur til að klámefni verði sýnt í sænsku sjónvarpi til að stuðla að auknum fæðingum.

Kirpikli telur að með því að sýna klámmyndir í ríkissjónvarpinu kvikni kynhvötin hjá hjónafólki og það láti undan löngun sinni.

„Ég vil meira klám í sjónvarpið, til dæmis hvern laugardag, frá morgni til kvölds. Það mun hvetja fólk til kynlífs," segir Kirpikli sem er 35 ára virðist láta athöfn fylgja orðum sínum því sjálf er hún þriggja barna móðir.

Leggið stund á lostanám.
og losnið svo við kvíða.
Í sjónvarpi þeim sýnum klám
er sona og dætra bíða.

5. september 2002


Drullupollur

Innlent | Morgunblaðið | 3.9.2002 | 5:55
Mynd af Bláa lóninu lenti í vitlausum bunka

Breska dagblaðið Guardian birti á fimmtudag í síðustu viku opnugrein prýdda ljósmyndum sem sýna eiga dæmi um mengun og áhrif þeirra víðsvegar að úr heiminum.

Greinin, sem birt er í tengslum við leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem nú stendur yfir í Jóhannesarborg, hefur vakið mikil viðbrögð meðal lesenda, einkum vegna ljósmyndar frá Bláa lóninu sem birt er með greininni og á að sýna dæmi um staði í náttúrunni sem mengun stafar af.

Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Lundúnum, hafði samband við dagblaðið í síðustu viku vegna birtingar á greininni og óskaði eftir því að umfjöllun um Bláa lónið yrði leiðrétt.

Þetta er klúður því er ver.
Þorsteinn harmar tjónið.
Enginn Breti aftur fer
oní Bláa lónið.

3. september 2002


X?

Ekki nokkurn nefna má
nýtan framboðslista.
En sumir kúka kerfið á
og kjósa húmanista.

24. maí 2002


Tilvistarkreppa

Fréttablaðið, Þri. 5. feb. 09:57
Hinrik prins í vanda

Viðtal sem birtist í síðdegisblaðinu B.T. við Hinrik prins á sunnudag hefur vakið gríðarlega athygli í Danmörku. Í viðtalinu lýsir Hinrik óánægju sinni með það að vera ýtt til hliðar í konungsfjölskyldunni og segist ósáttur við að vera í þriðja sæti goggunarröð konungsfjölskyldunnar.

Dýra krúnu drottning ber
Danaveldis.
Prinsinn Hinrik aðeins er
til undaneldis.

5. febrúar 2002


Könnun

Fréttablaðið, Þri. 29. jan. 07:50
Miklir yfirburðir R-listans og Ingibjargar Sólrúnar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nýtur mun meira fylgis en Björn Bjarnason. 60,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust vilja sjá hana sem borgarstjóra eftir kosningar. 34,8 prósent vildu fá Björn sem borgarstjóra. Ingibjörg nýtur því meira fylgis en R-listinn en Björn minna fylgis en D-listinn.

Í töluverðu basli á Björn,
brösuglega gengur.
Imba situr út við Tjörn
ofurlítið lengur.

30. janúar 2002


Byrjar vel!

Morgunblaðið | Erlent | AFP | 05.12.2001 | 16:56
Verðandi forsætisráðherra Afganistans særðist af völdum sprengju


Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins sagði að Karzai hafi verið á fundi með sérsveitarhermönnum þegar 2.000 punda sprengju var varpað úr bandarískri B-52 sprengjuflugvél en hún lenti of nærri bækistöðum hermannanna.



Til forsætis hann fenginn var
úr flokki úrvalsdrengja.
En Karzai við Kandahar
Kaninn reyndi að sprengja.

7. desember 2001


Flótti

The Daily Telegraph, London: 23 Nov 2001 - By Marcus Warren in Maydan Shar

THIS WAS not their finest hour. Bloodied and bemused, Northern Alliance troops trudged back yesterday afternoon from a botched assault on the last Taliban stronghold near Kabul.

Eleven tanks, plus a rocket launcher, were still blasting away at the enemy, but the foot soldiers had lost any stomach for a fight and were heading back to where they had begun the day, with very little to show for their efforts.

Meira ...

Þeir sóttu fram í stórum stíl,
stríðsmenn þjáði ei ótti.
Svo kom talíbani á bíl,
þá brast í liðið flótti.


27. nóvember 2001


Afhjúpun


Mullah Ómar mæðir sú
hin mikla sókn að norðan.
En blæju af sér bregður nú
brosmild hringa skorðan.


21. nóvember 2001


Manneldisráð: Sælgæti er matur

Morgunblaðið | Fimmtudagur | 15. nóvember 2001 | Neytendur
Hollustufæði um 9% ódýrara en meðalfæði

MÁNAÐARSKAMMTUR úr matarkörfu sem sett er saman samkvæmt skilgreindum hollustumarkmiðum kostar að meðaltali rúmum 9% minna en matarkarfa sem miðuð er við meðalneyslu, samkvæmt athugun Manneldisráðs og ASÍ.

Mesti munurinn á körfunum tveimur er að í hollustukörfu er ekkert sælgæti eða gos en þess í stað meira af grænmeti, ávöxtum, mögrum mjólkurvörum og kornmat.

Þetta er snilli þykir mér,
það er alveg skýrt.
Grænmeti er gefins hér
því gottið er svo dýrt.

20. nóvember 2001


Að þekkja takmörk sín - targets/takmörk

Fréttablaðið, Sun. 11. nóv. 19:03
"Bandaríkin geta aldrei náð mér lifandi"

Þetta kemur fram í viðtali sem pakistanskur blaðamaður tók við bin Laden nýlega

Í viðtalinu játar bin Laden í fyrsta skipti aðild sína að hryðjuverkunum á Bandaríkin. Tvíburaturnarnir voru lögmæt takmörk, þeir studdu efnahagsveldi Bandaríkjanna," sagði hann.

10 November 2001 Saturday 23 Shaban 1422

OBL: The Sept 11 attacks were not targeted at women and children. The real targets were America's icons of military and economic power.


World - Associated Press - updated 9:14 AM ET Nov 12
By CHRISTOPHER TORCHIA, Associated Press Writer

In the interview, Bin Laden did not admit responsibility for the attacks in which terrorists steered passenger planes into the World Trade Center and the Pentagon

Eigi þjakar okkar sker
upplýsingavandi
því fjölmiðlarnir flytja hér
fréttir traustvekjandi.

12. nóvember 2001


Brandur minn

Fréttablaðið, Þri. 6. nóv. 15:52
Hugsanlegur miltisbrandur í Landsbankanum

Aðalbanki Landsbankans við Austurstræti hefur verið rýmdur. Lögregla vill ekki gefa neinar upplýsingar um hvað sé í gangi, en ekki mun um sprengjuhótun að ræða. Samkvæmt heimildum leikur grunur á Miltilsbrandi.

Hingað lítið rándýr rann
og reyndi að skapa klandur.
Frá Laden inn í Landsbankann
læddist Miltisbrandur.

7. nóvember 2001


Flótti



Hálfnaður í helli sinn
hann í kuflinn sprændi.
Undan rennur ósóminn,
eltir Sámur frændi.


26. október 2001



Hér og þar.


Íslendingar óttast póst,
aðrir himinloga.
Ógnin, það mun öllum ljóst,
er ekki af sama toga.



24. október 2001


Skotmörk?



Ég held að ýmsir hrökkvi í kút
og hræðist skjótan bana
því leyndarmálin leka út
um loftárásir Kana.

19. október 2001



Krossferð

Fréttablaðið, Mið. 17. okt. 13:09
Viðurkenna að hafa sprengt upp vöruskemmu

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur viðurkennt að hafa óvart sprengt upp vöruskemmu Rauða krossins í árásum á Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gær. Pentagon sagðist ekki hafa vitað að Rauði krossinn notaði vörukemmuna.

Fram hefur komið að skemman var merkt Rauða krossinum í bak og fyrir og meðal annars á þaki ...



Kappar miklir kveiktu eld í krossi rauðum,
gengu af mörgum gumum dauðum
og gerðu aðra að mönnum snauðum.

17. október 2001


Miltisbrandari - Eins og alvöru fréttastofa í USA!

   16. OKTÓBER


BRÉFPÓSTUR TIL RÚV Í RANNSÓKN

Verið er að rannsaka torkennilegt bréf á sýklafræðideild Landspítalans en það barst inn á Fréttastofu Útvarpsins í gærmorgun.

Bréfið ... var nánast ómerkt ... Samkvæmt upplýsingum frá hraðsendingarfyrirtækinu hafa svipaðar sendingar áður borist til Ríkisútvarpsins og á fleiri staði í Reykjavík. Því má ætla að bréfið sé saklaust en rétt þótti að fara með gát vegna frétta af miltisbrandssendingum til fjölmiðla í Bandaríkjunum að undanförnu.



Miltisbrandari, frh.

Innlent | Morgunblaðið | 16/10 2001 11:16
Ekkert duft fannst í sendingunni til fréttastofu RÚV

Ekkert duft fannst í póstinum, en sýni var tekið úr póstinum til ræktunar. Búist er við því að það muni taka einn til tvo sólarhringa að fá úr því skorið hvort sendingin innihaldi miltisbrand.

RÚV 16.10.2001 12:10 "... reyndist innihaldið vera útdráttur úr handriti að kvikmyndinni Indiana Jones."

Að greina æ frá röngu rétt
reynist mönnum vandi
er semja svona flugufrétt
fulla af miltisbrandi.

16. október 2001


Infinite Justice

Fréttablaðið, Þri. 9. okt. 06:23
Flugskeyti lenti á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna

Fjórir létust og einn slasaðist þegar flugskeyti lenti á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í morgun. Starfsfólk skrifstofunnar hefur unnið við það að leita að jarðsprengjum í Afganistan.


Á Kabúlhimni hátt má sjá
hefndarengil sannan.
Dæmalausir dátar þrá
að drepa mann og Annan.

9. október 2001


Menning

Fréttablaðið, Þri. 21. ágú. 06:17
Köstuðu af sér vatni yfir gangandi hátíðargesti

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík á Menningarnóttinni og mikið um ölvun og skrílslæti.

Lögregla hafði afskipti af fólki sem stóð upp á þaki við verslunina Zimsen í Hafnarstræti og væri að henda flöskum í fólk og kasta af sér þvagi.

Þegar fjöldinn fer á stjá
fagrar listir dafna.
Á menninguna mátti sjá
míga næturhrafna.

21. ágúst 2001




@