Kúnum gefst á nýársnótt,
nákvæmt stærðir kvarðar.
Einatt sækir að mér skjótt,
orð og hugsun varðar.
lausn
Milli tveggja gín við gjá.
Getur boðað vætu.
Oft á hnífum hann má sjá.
Hlaðinn brauði sætu.
lausn
Ófyrirséð ástarbál.
Aldurtili seggja.
Teygað allt í einni skál.
Inn á milli veggja.
lausn
Umrætt góður gripur telst.
Guma prýðir klofið.
Seggur þar til setu velst.
Sjaldan þó er rofið.
lausn
Fagur prýðir felgu sá.
Fellur í hann skítur.
Vaknar stundum vanga á.
Varla á sjónum flýtur.
lausn
Athöfn þess sem öðrum nær.
Yfirvinnur léttasótt.
Blómið sem á grundu grær.
Gangverk sem að tifar ótt.
lausn
Kvistur til að knýja skeið.
Kölska þjónkun veitir.
Í sjóinn renna sína leið.
Snemma morguns heitir.
lausn