--->


Uxi
Kvasis dreyri
Rokk
Vefstólar
Forsíða
El Sur
Tinni
Sögur
@


Menning

Fréttablaðið, Þri. 21. ágú. 06:17
Köstuðu af sér vatni yfir gangandi hátíðargesti

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík á Menningarnóttinni og mikið um ölvun og skrílslæti.

Lögregla hafði afskipti af fólki sem stóð upp á þaki við verslunina Zimsen í Hafnarstræti og væri að henda flöskum í fólk og kasta af sér þvagi.

Þegar fjöldinn fer á stjá
fagrar listir dafna.
Á menninguna mátti sjá
míga næturhrafna.

21. ágúst 2001


Tíðarfarið

Út um gluggan enn ég sé
að ei er fært til messu.
Ætli það verði ekkert hlé
á ofanflóði þessu.

18. júlí 2001


Náin kynni

DV, Fös. 8. júní 09:45
Keikó átti tíu mínútna fund

Keikó hefur sex sinnum átt náin samskipti við aðra háhyrninga í nágrenni við Vestmannaeyjar að undanförnu. Lengsti "fundurinn" stóð yfir í um tíu mínútur, að sögn Jeffs Fosters, yfirþjálfara hans.

"Þegar hann hittir aðra háhyrninga teljum við að hann hafi ekkert að óttast, heldur verið forvitinn og sýnt áhuga. Þetta eru gáfuð dýr og lífið í sjónum verður þægilegra fyrir hann með hverjum deginum sem líður," sagði Jeff.


Keikó fékk sér kjöltudans
og kættist við það allur.
Velviljaður vinur hans
vélaði um það, Hallur.

8. júní 2001


To Tricky

Okkar maður, Íslands von,
endasætið hlýtur.
Birtu Einar Bárðarson
á botninum þó nýtur.

14. maí 2001


Passa sig!

Fréttablaðið, Fös. 11. maí 08:51
Í búð með Alice Cooper

Í gærmorgun gáfu krakkarnir sér samt tíma til að skreppa í búðir á Strikinu og rákust þá á rokkarann mikla, Alice Cooper. Hann spjallaði við Two Tricky-hópinn og í ljós kom að hann virtist vita þónokkuð um land og þjóð. Ekki fylgdi sögunni hvort Alice Cooper ætlar í Parken á morgun.


Einar fara ekki má
yfir Strikið
og Alice skjóta skelk í tá
skelfing mikið.

11. maí 2001


Ormur

Fréttablaðið, Mið. 9. maí 13:26
Klámfenginn tölvuormur

Nýr tölvuormur er kominn fram á sjónarsviðið, en ormurinn opnar m.a. nokkrar klámsíður á Netinu á skjá tölvunotenda.

Á heimasíðu Friðriks Skúlasonar ehf. geta notendur veiruvarnarforritsins Lykla-Péturs náð í nýjustu uppfærslur af gagnaskrám Lykla-Péturs en með þeim er hægt að greina veiruna og eyða henni.


Núna ormur nývakinn
um netið stormar fríður.
Brjálar hormón bráser minn
og bláar formar síður.

9. maí 2001

Algjör sveppur

Morgunblaðið | Laugardagur | 21. apríl 2001 | (Aðsent efni )
Saga af sveppum

Fyrir allnokkrum árum störfuðu þrír sveppaframleiðendur hér á landi. ... Eigandi Flúðasveppa linnti hins vegar ekki látum fyrr en landbúnaðarráðuneytið bannaði innflutning á rotmassa. Eftir það hafa Flúðasveppir verið einir á markaðnum og verð á sveppum hefur markast af þeirri staðreynd.

Könnun sem Neytendasamtökin gerðu nýlega á verði matvara í Reykjavík og Kaupmannahöfn leiddi í ljós að kílóið af sveppum kostaði 402 krónur í Kaupmannahöfn, án virðisaukaskatts. Í svipaðri búð hér á landi kosta þeir hins vegar 613 krónur, eða 53 prósentum meira.
Höfundur er formaður Neytendasamtakanna.


Gölt má víða feitan flá.
Á Flúðum upp í Hreppum
er hægt að græða ókjör á
einokunarsveppum.

24. apríl 2001


Heimsósómavísur

Fullur er af fiski sjór,
fyllist hugur trega.
Við bryggju liggur báru jór
bundinn tryggilega.

Á grænmetinu okra má,
en ekki hækkar kaupið.
Minnir þessi ótíð á
áramótaskaupið.

18. apríl 2001

Haraldur og tindarnir sjö

Morgunblaðið | Innlent | 05.04.2001 | 09:51
Haraldur Örn Ólafsson ákveður að ganga á Hátindana sjö

Haraldur Örn Ólafsson, betur þekktur sem Haraldur pólfari, hefur ákveðið að hleypa af stokkunum umfangsmesta verkefni íslenskrar fjallgöngusögu með því að klífa hæsta tind hverrar heimsálfu innan næstu þriggja ára.

Talið er að leiðangrarnir muni kosta á annan tug milljóna króna og er tímaramminn fyrir tindana sjö um þrjú ár.



Á þessu ani er engin mynd
og ekki er góður siður
að æða svona upp á tind
og aftur síðan niður.

5. apríl 2001


Eurotrash

DV, Lau. 31. mars 10:42
Afhjúpaði kynfærin í bresku sjónvarpi

Þetta var Páll Arason, framkvæmdastjóri í Hörgárdal, sem opinberaði nekt sína í þættinum Eurotrash á Channel 4. Páll er fyrsti maðurinn sem hefur ákveðið að gefa sinn eigin getnaðarlim á Reðursafnið í Reykjavík og var sú ákvörðun tilefni þess að sjónvarpsstöðin tók hann tali.

Það atriði sem einna mestu athyglina vakti, var hins vegar þegar mót var tekið af kynfærum Páls. Ekki gekk sem skyldi að móta æxlunarbúnaðinn en þá sagði Páll reðurgjafi úr Hörgárdal: ,,Þú hefðir átt að sjá hann í gærkvöldi."


Páli Ara er svo lýst
að okkar brást hann vonum
því að lyktum leyndist víst
lítið undir honum.

31. mars 2001


Neyðin kennir naktri konu

Vísir, Fim. 22. mars 19:32
Allt að 50.000 fyrir hvert skipti

Ung íslensk vændiskona sagði í viðtali við Stöð 2 að hún seldi sig þrisvar til fjórum sinnum í viku og fengi allt að 50.000 krónur fyrir skiptið.

Hún sagði að neyð hefði ekki rekið sig út í vændi. Það sem hefði dregið hana í þetta væri einfaldlega þær tekjur sem hún hefði upp úr þessu.


Þó kvensu hjá sé nöpur neyðin
hún nakin kann úr því að spinna
og krónur fær, en römm er reiðin.
Raunaleg er þessi vinna.

22. mars 2001


Samruni

Vísir, Þri. 20. mars 15:16
Blásum til sóknar

Aðspurður að því hvort samruninn muni þýða breytingar á ritstjórnarstefnu DV sagði Óli Björn að nýir starfsmenn settu ávallt svip sinn á fjölmiðil. ,,Þeir sem móta fjölmiðill eru starfsmennirnir, ég tala nú ekki um þegar er um gamalreynda blaðamenn að ræða, og auðvitað munu þeir setja mjög sterkan svip á blaðið. Þá verða ýmsir fastir liðir úr Degi áfram í DV.


Brotið er í blað á ný,
að bændum setur leiða.
Nú er Dagur dálkur í
DV sunnan heiða.

21. mars 2001


Shot fear in toe - Og mér var brugðið

Birta
Óveður skall mér á.
Skaut mér skelk í tá.
Og mér var brugðið.
Einar Bárðarson

Innlent | Morgunblaðið | 27/2´01 14:28
Útvarpsráð leyfir að syngja á ensku

Útvarpsráð samþykkti á fundi sínum í dag tilllögu Marðar Árnasonar um að Einar Bárðarson, höfundur sigurlagsins í forkeppni Evrovision, ráði því sjálfur á hvaða tungumáli lag hans, Birta, verður sungið í aðalkeppninni í Kaupmannahöfn í vor.

Ráðið samþykkti á sínum tíma tillögu Marðar um að lagið yrði sungið á íslensku en hann sneri við blaðinu eftir að Bandalag íslenskra listamanna taldi að vegið væri að tjáningarfrelsi lagahöfundarins.

Einar brúka ensku má
í júróvisjónlagi.
Skaut hann Merði skelk í tá
með skelfilegum bragi.

28. febrúar 2001


Enginn friður 2001

Vísir, Mið. 14. feb. 13:45
SMS-skilaboð Friðar 2000 valda óánægju?

Talsverðrar óánægju gætir meðal farsímanotenda sem hafa fengið SMS-skilaboð frá Friði 2000 þar sem lofað er ókeypis máltíð og milljónapotti.

Svo virtist sem símahapp.com á vegum Ástþórs Magnússonar hefði búið sér til útsendingarlista úr símaskrá og sent út eftir honum.

Mikillar óánægju hefur gætt meðal margra þeirra sem hafa fengið SMS-skilaboðin frá Milljónapotti Friðar 2000.

Margir þeirra sem fengu auglýsinguna frá Friði 2000 í síma sinn hafa lýst óánægju sinni með að hægt sé að senda þeim auglýsingar í símann sem þeir hafa ekki beðið um. Einn þeirra sem Vísir.is ræddi við taldi að sendingin væri skýrt brot á friðhelgi einkalífsins og lýsti furðu á því hvernig aðstandendur Friðar 2000 kæmust upp með slíkt.


Ástþór lítt af öðrum ber
Íslands sonum.
Enginn flóarfriður er
fyrir honum.

15. febrúar 2001


Klár

Vísir, Fös. 9. feb. 09:49
Nýtt merki Framsóknar?

Á blaðamannafundi í gær, þar sem hann tilkynnti framboð sitt til varaformanns Framsóknarflokksins, viðraði Guðni Ágústsson hugmyndir að nýju merki Framsóknarflokksins þar sem hvítur hestur yrði í öndvegi.

Guðni tók fram síðar á blaðamannafundinum í gær að þær væru meira í gríni en alvöru þessar vangaveltur sínar.


Skrauta munarbyrðar ber.
Hún baular eftir kossi.
En núna Guðni Ágústs er
upptekinn af hrossi.

9. febrúar 2001


Bóhem

DV, Mið. 7. feb. 11:18
Tipsaði eiginkonuna með 40 þúsundum

"Ég er alveg steinhissa á mönnum sem fara út að skemmta sér með svona mikið fé í vösunum," segir Guðjón Sverrisson, eigandi nektardanstaðarins Bóhem við Grensáveg. En hitt er alveg klárt að maðurinn eyddi ekki 400 þúsund krónum í dans hér inni," segir hann um viðskiptavin sinn sem staðhæfir að hann hafi keypt nektardans í Bóhem fyrir 400 þúsund og verið rændur að auki á meðan hann brá sér á salerni til að minnka á spennunni.

Viðskipavinurinn sem hér um ræðir er þekktur í reykvískum veitingahúsaheimi og rak um tíma vel kunna krá.


Margt er sér til gamans gert
á góðu nætursvalli.
Á klóið þurfti kunnur vert
í keng af spennufalli.

7. febrúar 2001


Réttur er settur

DV, Þri. 6. feb. 10:53
Ákærði gleymdist

Undrunar og óánægju gætti í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í gær þegar ljóst varð að sakborningur í talsvert stóru e-töflumáli mætti alls ekki þar sem ekki höfðu verið gerðar viðeigandi ráðstafanir til að flytja manninn frá Litla-Hrauni.

Dómari, fulltrúi ríkissaksóknara og verjandi voru allir mættir klukkan eitt, mínúturnar liðu og fólk beið en engir fangaflutningamenn sáust koma með ákærða.

Fólk í dómsalnum leit hvert á annað í forundran - hvernig getur það gerst í opinberu réttarhaldi þar sem maður er borinn þungum sökum að ekki séu gerðar ráðstafanir til að færa hann fyrir dóm?


Dómarinn í borðið ber,
bullið dregst á langinn.
Guði og mönnum gleymdur er
gæsluvarðhaldsfanginn.

6. febrúar 2001


Ég vildi að alla daga væru jól

DV, Fim. 1. feb. 13:15
Hvað kostar að greiðsludreifa?
- jólareikningar kreditkortanna komnir

Nú um mánaðamótin er komið að því að greiða jólaúttektirnar á kreditkortin sem, án efa, eru himinháar hjá sumum. Margir gleymdu sér í jólaösinni og notuðu kreditkortin sín í óðaönn án þess að hugsa nokkru sinni um að einhvern tímann kæmi að skuldadögunum.

En nú eru þeir dagar komnir og töluverður fjöldi fólks uppgötvar að það á erfitt með að greiða reikningana sína í einu lagi. Því er gripið til þess ráðs að dreifa greiðslunum yfir lengra tímabil til að eiga fyrir öðrum útgjöldum mánaðarins. En það kostar sitt, ekki síst núna þegar vextir eru háir í þjóðfélaginu.


Að kortin séu þarfa þing
þarf víst ekki að sanna
því jólin allan ársins hring
eru í veskjum manna.

2. febrúar 2001


Nauðsynjaverk

Dagur, Þri. 30. jan. 07:14
Lítið um ferðalög fátækra

Tekjulágar fjölskyldur ferðast ekki einu sinni helming á við þær vel settu og eyða líka miklu minna á ferðalögum sínum.




Ný könnun Ferðamálaráðs á ferðavenjum Íslendinga á árinu 2000 leiðir í ljós hvað ferðalög fólks, ferðafjöldi og öll ferðatilhögun ræðst í gífurlega miklum mæli af tekjum.





Fræðingarnir fóru á stjá
og fengust við að kanna
hvort tekjur hefðu áhrif á
eyðslugetu manna.

30. janúar 2001


Tapsárir

Vísir, Þri. 23. jan. 10:02
MH kærði aftur

Fyrirliði keppnisliðs MH í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna hefur kært það að liðið komist ekki áfram í keppninni eftir tap fyrir Versló.

Þetta er í annað sinn, sem MH sendir inn kvörtun vegna framkvæmdar keppninnar, ... Kröfu MH-inganna hefur verið hafnað nú sem fyrr.


Þó illa gangi aldrei má
að örmu ráði hrapa.
Ótækur er ætíð sá
sem ekki kann að tapa.

23. janúar 2001


Hraðsveitir NATO?

Vísir, Fim. 11. jan. 13:18
Feitir hermenn fara hvergi

Feitir hermenn fara hvergi Danskir hermenn verða að passa upp á línurnar ef þeir vilja eiga möguleika á því að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum hersins á erlendri grund í framtíðinni. Of feitir hermenn fá nefnilega ekki fararleyfi.

"Þetta er gert með þeirra eigin velferð fyrir augum, en ekki af einhverjum kvikindisskap," segir Erik Darre, læknir við heilsugæslu hersins, í viðtali við Jyllandsposten.

"Við miðum við verstu mögulega aðstæður sem upp geta komið, þegar við veljum fólk til þátttöku í alþjóðlegum verkefnum. Ef eitthvað fer úrskeiðis, þá verður það að vera fært um að koma sér undan. ..." segir Darre.


Fita herjar hermenn á
og hetjum veldur skaða.
Á undanhaldi naumast ná
þeir nægilegum hraða.

11. janúar 2001


Stál og hnífur

   18. DESEMBER


BROTIÐ Á SÆMDARRÉTTI BUBBA MORTHENS?


Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens stefnir líklega farsímafyrirtækjunum og hringitóna í farsímum.

Bubbi hefur raunar bannað þessa notkun en lögin eru komin í símana og skaðinn er skeður. Krafist er bóta upp á samtals 2,6 miljónir. Sættir eru enn mögulegar en þó er líklegt að málið fari fyrir dóm.



Stál og hníf við belti ber
Bubbi Morthens styggur.
Æviverkið afskræmt er
og utangarðs nú liggur.

19. desember 2000

Levi's í alla pakka

Morgunblaðið | Miðvikudagur 6. desember 2000.
Kristilegar gallabuxur

"Við erum alls ekki að tala um að veita "kristilegasta" efninu viðurkenningu (...) heldur því efni sem beinir sjónum okkar að boðskap jólanna, vekur umræðu og auðveldar okkur að sjá innihaldið í öllum umbúðunum," sagði sr. Bernharður Guðmundsson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, ...

En auglýsendur eru greinilega ekki allir niðri á jörðinni, eins og skilti í einum Laugavegsglugganum vitnar um. Þar kemur engill svífandi af himnum ofan og segir: "Verið óhrædd því sjá, ég boða ykkur mikinn fögnuð: Levi's í alla pakka!".


Drottinn gaf og drottinn tók
en drjúg er miskunn hans
því nú má kaupa nýja brók
í nafni frelsarans.

6. desember 2000

Dýragarðsbörnin

DV, Fös. 24. nóv. 11:03
Krefst einnar milljónar í skaðabætur
var átta klukkustundir í fangaklefa án skýringar

Liðlega sextugur Keflvíkingur hefur stefnt ríkinu til greiðslu einnar milljónar króna í skaðabætur fyrir að hafa verið handtekinn að ósekju.

Vitni í málinu, starfsstúlka á Aðalstöðinni í Keflavík, sagði í skýrslu hjá lögreglu að ... Hins vegar hefði hann sagt við lögreglumanninn "að helvítis asninn ætti að koma sér í burtu". Hún sagði hins vegar að lögreglumaðurinn hefði kallað manninn "apa".


Þó hér sé illa hallað rétti
hent er að því gaman
þegar asna og apaketti
illa kemur saman.

24. nóvember 2000


Eddukvæði

geldir hanar
hreykja sér
á sjálfshóli

23. nóvember 2000


Tveir vinir og annar í fríi

   16. NÓVEMBER


DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU: MEGAS VERÐLAUNAÐUR

Megas, Magnús Þór Jónsson hlaut í dag verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í tilefni af Degi íslenskrar tungu.

Menntamálaráðherra afhenti Megasi verðlaunin og sagði við það tækifæri að sér væri það persónulega ljúft. Þeir Megas hefðu þekkst frá því þeir gengu í Austurbæjarskóla fyrir mörgum árum og hafa þau bönd, sagði ráðherra, sem þá sköpuðust aldrei rofnað þótt við höfum valið okkur ólíkar leiðir í lífinu.


Megas þykir, mín er trú,
misjafnlega góður.
En sækir gull í greipar nú
gamals skólabróður.

17. nóvember 2000

Hátíð ber að höndum ein

DV, Mið. 15. nóv. 10:01
Jóladýrðin kom á einni nóttu

Margir vöknuðu við það á mánudagsmorguninn að stór hluti verslana á Akranesi var búinn að setja út jólaseríur og skreyta glugga sína með jólaskrauti og jólaseríum. Sumir vissu varla hvaðan á sig stóð veðrið því enn er hálfur annar mánuður til jóla, bara rétt tæplega miður nóvember.


Nú frelsari oss fæddur er,
fögnuð má ei draga.
Hátíð skjótt að höndum ber
haldin upp á Skaga.

15. nóvember 2000


Koss

Innlent | Morgunblaðið | 31/10´00 14:42
Guðni kyssti Skrautu að Stóra-Ármóti

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hélt blaðamannafund á Stóra-Ármóti í Hraungerðishreppi, rétt við Selfoss, í dag. Þar tilkynnti hann þá ákvörðun sína að heimila innflutning á fósturvísum úr NRF-kúastofninum norska sem leitt gæti í ljós hvort hagkvæmt væri að taka kýr af þeim stofni eða blendingsgripi af íslenskum og norskum stofni til notkunar við mjólkurframleiðslu á Íslandi. Að fundinum loknum fór hann í fjósið á tilraunabúinu að Stóra-Ármóti og kyssti Skrautu í kveðjuskyni.

Boli fnæsti, flór upp jós
og ferleg hornin hristi
þegar Guðni gekk í fjós
og granir Skrautu kyssti.

1. nóvember 2000

Ást á Indlandi

DV, Mán. 30. okt. 07:37
Í strigaskóm á leið í ástarhof

Forsetinn hefur vakið töluverða athygli ytra fyrir frjálslegan klæðaburð ... Unnusta hans, Dorrit Moussaieff, fylgdi honum léttklædd með sólhatt og dökk gleraugu. Auk þess er Dalla, dóttir forsetans, með honum í för.

Opinber heimsókn forseta Íslands á Indlandi hófst klukkan 4.30 í nótt að íslenskum tíma og bíða fréttamenn sem fylgja honum spenntir eftir heimsókn hans og unnustu í Taj Mahal hofið sem lengi hefur verið draumaáfangastaður elskenda úr öllum heimshornum.

Ekki er talið ólíklegt að Ólafur Ragnar og Dorrit gefi ljósmyndurum tækifæri til að mynda sig á þessum sögufræga stað þar sem hjörtu elskenda renna oftar en ekki saman í eitt við stórbrotið hofið og laugina sem að því liggur.


Í brjóstum hjörtun hraðar slá,
af hvörmum tárin falla
er Dorrit lítur Ólaf á.
Utanveltu er Dalla.

30. október 2000


Guð hjálpar þeim er hjálpa sér sjálfir

Vísir, Þri. 24. okt. 07:34
Jónas á hálum ís

Ummæli Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, í útvarpsfréttum í gær hafa vakið hörð viðbrögð m.a. vegna þess að Jónas var sjálfur opinberlega bendlaður við smyglmál síðastliðið sumar.

Jónas sagði að forysta Sjómannasambandsins liti áfengissmygl farmanna ekki alvarlegum augum. Það hefði viðgengist lengi en allt öðru máli gegndi um fíkniefnasmygl.

Samkvæmt tölum frá tollstjóraembættinu í Reykjavík um haldlagningu áfengis og tóbaks, hefur ólöglegur innflutningur aukist töluvert.

Ef marka má orð Jónasar Garðarssonar er eitthvað minni áhugi á samstarfi með lögreglu og tollgæslu þegar áfengisinnflutningur er annars vegar.


Þeir ekki mikið eiga bágt
sem utan tíðum sigla.
Þó kaupið reynist kannski lágt
þá kunna þeir að smygla.

24. október 2000


Margt er sér til gamans gert

Íslendingar meta mest
mjöð og góðar vísur
þó sumir kunni kannski best
að klippa út dúkkulísur.

20. október 2000


Nýjasta nýtt





   Agora-sýningin

   Agora var ógnarstór,
   þar ótal voru græjur.
   En vinsælast var blak og bjór
   og brjóstamiklar pæjur.









16. október 2000


Þá er þjóðerni langfeðga Grænlendingsins á hreinu

THE WHITE HOUSE | Proclamation by the President: Leif Erikson Day, 2000 | (10/6/00)


BY THE PRESIDENT OF THE UNITED STATES OF AMERICA

A PROCLAMATION

This year, as we mark the beginning of a new millennium, we also celebrate the 1000th anniversary of Europe's first contact with North America. At the turn of the last millennium, the legendary explorer Leif Erikson -- son of Iceland, grandson of Norway -- sailed across the cold waters of the Atlantic from his home in Greenland to the eastern coast of North America, completing the first documented voyage of Europeans to the New World.

WILLIAM J. CLINTON  

Nú er þjóðin norska svekkt
nærri sem má geta.
Faðernið er frækilegt
en fáir afann meta.

13. október 2000


Framtíðarlausn

Innlent | Morgunblaðið | 10 október 2000
"Gervilögregluþjónar" minna á umferðarlögin

SÝSLUMENNIRNIR í Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík og á Keflavíkurflugvelli kynntu á blaðamannafundi í gær umferðarátak lögreglu á Reykjanesbraut, allt frá Mjódd að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en það stendur í dag og á fimmtudaginn. Ein helsta nýlundan í þessu átaki er án efa notkun svokallaðra "gervilögregluþjóna" sem eiga að minna vegfarendur á að virða umferðarlögin.

Gervilögregluþjónarnir verða 8-10 talsins og verða settir niður í vegkanti Reykjanesbrautar. Þar munu þeir standa vakt allan sólarhringinn.

Glæpamönnum gerir skil
glaðbeitt sveitin kappa,
liðsaukinn sem lagðist til
lögreglunni úr pappa.

10. október 2000


Haust

Á gárum Tjarnar glitrar sól,
guma vænkast hagur.
Heldur nálgast heilög jól
en horfinn eldhúsdagur.

4. október 2000


Þingsetning


  Til afreka skal eggja
  Alþingi og hvetja
  þá sem línur leggja
  og lögin okkur setja.

3. október 2000


Stangarstökkskonur striplast

Tatiana úr fötum fer,
þó finnst mér vera galli
að stúlkan ekki stökkvi ber
og striplist uppá á palli.

29. september 2000


Vökur

Síðla nætur sýp ég oft á Sónar legi,
tungu væti hof og hneigi
haus er gætir birtu af degi.

26. september 2000


Hjálpum þeim

   24. SEPTEMBER


BIFHJÓLAEIGENDUR SAFNA FYRIR TRYGGINGARFÉLÖGIN

Bifhjólaeigendur halda síðdegis tónleika á Ingólfstorgi til styrktar tryggingarfélögunum.

Að sögn forsvarsmanna bifhjólaeigenda halda þeir tónleikana vegna bágborinnar fjárhagsstöðu tryggingarfélaganna sem þeim finnst skína í gegn vegna mikillar hækkunar á iðgjöldum.

Söfnunarbaukar hafa gengið á tónleikunum, en ekki er vitað þegar þetta er skrifað, hvað mikið hefur safnast í þá.


Hið álitlega Adams rif
aldrei brugðist hefur.
Á Kawasaki kemur Siv
og krónu í baukinn gefur.

25. september 2000


Hrossasalan til Þýskalands

18. September 2000 Sjónvarpið 19:00
Grunur um skattsvik.

Grunur um skattsvik hrossaútflytjenda hefur í allmörgum tilvikum reynst á rökum reistur skv. rannsókn skattayfirvalda sem hófst í vor.

Rannsókn þýskra tollyfirvalda í fyrra á innflutningi íslenskra hrossa til Þýskalands leiddi sem kunnugt er í ljós að verðið sem gefið var upp á tollskýrslum var gjarnan mun lægra en raunverulegt söluverð hrossanna.

Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri vill ekki upplýsa hversu margir útflytjendur eiga hér hlut að máli né hversu stórar fjárhæðir er um að tefla en ætla má að það skipti milljónatugum.

Þeir leggja á hrossin lítið gjald
svo löggan ekkert fatti,
selja þau til Schwarzenwald
og svíkja undan skatti.

22. september 2000


Breyttir tímar

Erlent | AP | Morgunblaðið | 20/9´00 21:45
Fyrsta konan til að gegna starfi aðstoðarritstjóra WSJ

Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal hefur útnefnt Joanne Lipman í starf aðstoðarritstjóra. Lipman, sem er 39 ára gömul, hefur verið ritstjóri helgarútgáfu blaðsins frá 1998 og hún mun hafa yfirumsjón með útgáfu þess. Kona hefur ekki áður gegnt jafn valdamiklu starfi hjá blaðinu.

er af sem áður var,
ekki er því að leyna,
er karlmenn unnu en konurnar
krökkum voru að skeina.

21. september 2000


Salmonella

Innlent | Morgunblaðið | 19/9´00 10:03
Engin önnur salmonellutilfelli

Londre Compani í Los Angeles í Bandaríkjunum, sem er dreifingaraðili Dole-jöklasalatsins, sem talið er hafa orsakað salmonellusýkingu hér á landi, hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þar hafi ekki komið upp nein önnur salmonellutilfelli. Ísland væri því eina landið sem hefur innkallað Dole-jöklasalatið.

Í tilkynningu bandaríska fyrirtækisins segir að neytendur geti haft beint samband við Dole í gegnum tölvupóst, www.dole.com.

Staðfest er að 73 hafi sýkst af salmonellu hér á landi og sýni úr nokkrum til viðbótar eru í ræktun.

Læknum með sín tæki og tól
tekst ei sök að finna.
Þótt enginn fái drullu af Dole
er dritað eigi minna.

21. september 2000


Kjarabarátta

   19. SEPTEMBER


BRJÓSTASTÆKKUNIN FRÁDRÆTTARBÆR

Starfsstúlku á nuddstofu í Kaupmannahöfn leyfist að draga kostnað við brjóstastækkun frá á skattframtali sínu.

Það var úrskurðarnefnd í álganingar kærum sem úrskurðaði í máli konunnar en undirnefnd í Kaupmannahöfn hafði vísað kröfu hennar frá.

Úrskurðarnefndin taldi brjóstastækkun konunnar vera fjárfestingu sem félli undir viðhald búnaðar eða rekstur arðbærrar starfsemi.


Nuddkonur á nærfötum og netasokkum
bregða sér í brjóstastækkun
og berjast fyrir skattalækkun.

20. september 2000


Veðrið

Hrakinn róni haskar sér
til hlés við Lækjartorg.
Norðanrokið ríkir hér
í Reykjavíkurborg.

19. september 2000


Á steinaldarstigi

Innlent | Morgunblaðið | 15/9´00 05:30
Neanderthalmenn búa á Akureyri

NEANDERTHAL-maðurinn dó alls ekkert út fyrir þrjátíu og fimm þúsund árum eins og vísindamenn hafa fram að þessu talið ... í nágrenni Akureyrar býr nefnilega ellefu manna fjölskylda og hefur það bara býsna gott, a.m.k. ef eitthvað er að marka nýlega frétt bandaríska furðufregnablaðsins Weekly World News sem nálgast má á Netinu.

Haft er eftir mannfræðingi sem ber nafnið Olaf Norrkopinger að skýringin á því hvers vegna þessi hópur Neanderthalmanna hafi lifað af án þess að nokkur hefði um það grun geti falist í því hversu gífurlega strjálbýlt Ísland er. Kveðst hann hlakka til að komast nú að hinu sanna um tengsl nútímannsins við Neanderthal-manninn með rannsóknum á erfðaefni fjölskyldunnar frá Akureyri.

Á Akureyri, ekki skýr
en öllum velviljaður,
í Nonnahúsi nakinn býr
Neanderthalsmaður.

15. september 2000


Andlátsfregn



Þriðjudagur 12. september 2000
Refur lést á kvöldgöngu

Ökumaður varð fyrir því óláni að keyra á ref, sem var að spássera á Reykjanesbraut við Grindavíkurafleggjara, á aðfaranótt laugardags.

Refurinn lést samstundis en ökumaður óskaði eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja líkið af slysstað.

Þjóðin hefur mikils misst,
melrakki er látinn.
Hann vofeiflega andaðist
og afar sárt er grátinn.

12. september 2000


Himneskur friður

Li Peng marga losaði við líftóruna.
Enga miskunn kunna í Kína
kommúnistarnir að sýna.

Ef óvininum útrýma þarf annars staðar
er gripið til þess góða siðar
að gera það í nafni friðar.

9. september 2000


Píslarvottur

Vísir, Þri. 5. sep. 12:31
Árni Snævarr kærir lögregluna

Árni Snævarr, fréttamaður Stöðvar 2, hefur ákveðið að læra lögregluna fyrir að brjóta á sér stjórnarskrárbundin réttindi.

Meint brot áttu sér stað er hann fylgdist með opinberri heimsókn Li Pengs, forseta kínverska þingsins, hér á landi. Íslenskir lögreglumenn og kínverskir öryggisverðir rifu í bindi Árna, gáfu honum olnbogaskot og slógu til hans þegar hann reyndi að spyrja Li Peng hvort hann væri fjöldamorðingi:

"Þetta er til skammar. Ég ætlaði aðeins að gefa Li Peng kost á að svara þeim ásökunum sem fram hafa komið um að hann sé fjöldamorðingi. Verst þykir mér þó að starfsmaður Alþingis skuli hafa sigað á mig lögreglu og kínverskum ruddum," sagði Árni Snævarr í morgun. "Það eina sem fyrir mér vakti var að gefa Li Peng kost á að svara ásökunum sem á hann hafa verið bornar. Ég kæri."




Óttalaus hann lífi sínu og limum hætti.
Frómur Árni í fréttaþætti
fagurt þoldi píslarvætti.

7. september 2000


Nýtt líf

Sumarlangt menn sitja við að svalla í leti,
ganga ekkert, grilla úti,
grænan Tuborg svolgra af stúti.

Er hausta tekur horfir fólk á hold sitt nakið
og finnst að lyktum fyrir vikið
af fitu vera allt of mikið.

Þykjast ýmsir þekkja ráð við þessum vanda
og lofa ríka rýnun punda,
reyndar innan fárra stunda.

Gildur maður gefur kost á góðum bata
fyrir þá sem allt upp éta
og ei sig megrað nokkuð geta.

Vissulega er voðalegur vandinn heftur.
En gaurnum síðan glutrast kraftur
og góðri ístru safnar aftur.

5. september 2000


Gourmet gaukur


      Hrossagaukur hneggjar kátt, um himinn þýtur.
      Frækinn kokkur fuglinn lítur
      og fagnandi hann niður skýtur.

31. ágúst 2000


Gúrkutíð

   29. ÁGÚST


GUÐMUNDUR BÚINN AÐ FÁ GÍTARANA

Guðmundur Pétursson gítarleikari hefur fengið í hendur tvo gítara sem stolið var úr bíl hans fyrir skömmu.

Lögreglunni barst ábending um hvar ... í húsi í austurbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Þeir voru óskemmdir eftir því sem fréttastofa Útvarps kemst næst.

Enginn hefur verið handtekinn vegna þjófnaðarins en unnið er að rannsókn málsins.


Fjölmiðlarnir flytja hér
fréttir einskis nýtar:
,,Strákur lætur stela af sér
stórkostlegum gítar!"

30. ágúst 2000


Samfélag trúaðra

DV, Mán. 28. ágú. 07:10
Krossinn klofinn

"Gunnar hefur breyst svo mikið á síðustu þremur árum að það er ekki lengur hægt að vinna með honum. Við höfum stofnað nýjan söfnuð og sótt um leyfi til að vera kirkja," segir Kristján Rósinkransson, forstöðumaður í nýjum söfnuði fyrrum liðsmanna Krossins sem hlotið hefur nafnið Bethanía.

Að sögn Kristjáns voru skráðir félagar í Krossinum 500 talsins um síðustu áramót en þar af voru aðeins 200 virkir. Bethanía hefur því náð í meira en helming virkra félaga en Kristján í Bethaníu gegndi áður lykilhlutverki í Krossinum sem gjaldkeri safnaðarins. Skuldir vegna mikilla húsbygginga Krossins í Kópavogi munu vera að sliga trúfélagið en þær nema nú hátt í þrjú hundruð milljónum króna.



      Mammon gamli Krossinn klauf,
      Kristur hátt við stundi.
      Samfélagið syndin rauf,
      Satan vel sér undi.

        28. ágúst 2000






Bonanza

DV, Fim. 24. ágú. 10:35
Kærir hestaleiguna í Laxnesi

"Það er búið að vera Bonansa-ástand hér í sveitinni eftir að dóttir nóbelsskáldsins á Gljúfrasteini komst í bæjarstjórn. En ég er mjög ánægður með þessa kæru," segir Þórarinn í Laxnesi sem sér ekki lausn á málinu á meðan landið er óskipt og ofanfjárgirðingu vantar.

"Stór hluti þessa lands er óhæfur til beitar en ég hef ekki kært ástand hrossanna enda mér óviðkomandi," segir Oddgeir, garðyrkjustjóri í Mosfellsbæ.



      Hrossin hafa nagað nóg,
      nú upp deilur gjósa.
      Póri líkist litla Joe
      og Laxnes Ponderosa.

        25. ágúst 2000



Kristnihátíð

Í Mogganum Laugardaginn 19. ágúst 2000 er eftirfarandi frétt: ,,BISKUP Íslands, Karl Sigurbjörnsson, predikar við messu í stærsta manngerða helli landsins við bæinn Hella í Landsveit í dag kl. 11. Er messan liður í kristnihátíð Rangárvallaprófastsdæmis.``




      Nú er þörf á nýjum sið
      sem nærir þarfir andans
      því biskup hefst í helli við
      á háalofti fjandans.

        21. ágúst 2000




Djúpa laugin

Rakel valdi Rómeó
sem ríða vildi.
Unga pían ekki þó
hans ætlun skildi.

18. ágúst 2000


Internetið

Internetið menntar mann,
Einar, má þar finna Ben.,
Davíð, Ólaf, andskotann
Alþingi og Hakkinen.

18. ágúst 2000




@