|
Fluga
Stöngin dugar, styrk er hönd,
stefnu hugur metur.
Uxi flugu í laxa lönd
litskrúðuga setur.
19. ágúst 2005
Paparazzi á Glaumbar
DV 17. mars

Karlmann hrelldi kona á bar
kennd við paparazzi.
Ástþór vildi ekki par
una þessu skassi.
Fljótráð vildi festa á mynd
friðar kenndan boða.
Drygði hún þar dauðasynd,
sér daman fór að voða.
Okkar tíma Íslandssól
eitthvað fór að vola
er Ástþór hennar tæki og tól
tókst að brjóta í mola.
17. mars 2005
desember 2004
Andspyrnan í Írak.
Úthald járnfrúarinnar og Tóní
Fréttablaðið, febrúar 2003
Viskí og vítamín
MARGRÉT THATCHER
Járnfrúin var þekkt fyrir að þurfa lítinn sem engan svefn. LONDON, AP Þegar mikið reyndi á í stjórnartíð Margrétar Thatcher notaði járnfrúin viskí og vítamín til að halda sér gangandi, segir Cynthia Crawford, fyrrum aðstoðarkona hennar, í viðtali ...
Stundum gróf og stundum fín,
styrkt með járni bauga hlín.
Vandist fljótt á vítamín.
Viskí drakk hún eins og svín.
Núna ríkir verkamannsins von,
vænsti piltur hress og glaður.
En samt er Tony Blair í Babýlon
breskur ójafnaðarmaður.
4. mars 2003
Gangnaraunir
DV, Þri. 17. september
Lauk göngum fótbrotinn
Guðmundur, sem var austasti maðurinn í göngunum og gekk Víðidalinn, lenti með hest sinn niður í keldu framarlega í dalnum, svokallaða Kjaftalaut, þar sem Skagfirðingar skipta göngum. Hesturinn lenti ofan á Guðmundi og kramdi fót hans illa. Hans verður án efa sárt saknað í smalamennskunni í haust, enda, að sögn bænda þar um slóðir, með magnaðri smalamönnum, vel ríðandi og með góðan hund sér til aðstoðar. Framganga Guðmundar í göngunum að þessu sinni þykir hörð og ekki neytti hann neins í göngunum til að deyfa verkina. Gangnapeli hans var ósnertur og þáði hann ekki boð frá öðrum gangnamönnum.

Undan Gvendi hrossið hnaut
þótt hann sé fárra maki.
Kappinn oní Kjaftalaut
kastaðist af baki.
18. september 2002
Heimanám
Erlent | Morgunblaðið | 5.9.2002 | 12:07
Vill klám í sænska ríksissjónvarpið til að fjölga fæðingum
Teres Kirpikli, þingmaður kristilegra demókrata í Svíþjóð, segir alvarlegan samdrátt hafa orðið í fæðingum þar í landi og leggur til að klámefni verði sýnt í sænsku sjónvarpi til að stuðla að auknum fæðingum.
Kirpikli telur að með því að sýna klámmyndir í ríkissjónvarpinu kvikni kynhvötin hjá hjónafólki og það láti undan löngun sinni. „Ég vil meira klám í sjónvarpið, til dæmis hvern laugardag, frá morgni til kvölds. Það mun hvetja fólk til kynlífs," segir Kirpikli sem er 35 ára virðist láta athöfn fylgja orðum sínum því sjálf er hún þriggja barna móðir.
Leggið stund á lostanám.
og losnið svo við kvíða.
Í sjónvarpi þeim sýnum klám
er sona og dætra bíða.
5. september 2002
Drullupollur
Innlent | Morgunblaðið | 3.9.2002 | 5:55
Mynd af Bláa lóninu lenti í vitlausum bunka
Breska dagblaðið Guardian birti á fimmtudag í síðustu viku opnugrein prýdda ljósmyndum sem sýna eiga dæmi um mengun og áhrif þeirra víðsvegar að úr heiminum.
Greinin, sem birt er í tengslum við leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem nú stendur yfir í Jóhannesarborg, hefur vakið mikil viðbrögð meðal lesenda, einkum vegna ljósmyndar frá Bláa lóninu sem birt er með greininni og á að sýna dæmi um staði í náttúrunni sem mengun stafar af. Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Lundúnum, hafði samband við dagblaðið í síðustu viku vegna birtingar á greininni og óskaði eftir því að umfjöllun um Bláa lónið yrði leiðrétt.
Þetta er klúður því er ver.
Þorsteinn harmar tjónið.
Enginn Breti aftur fer
oní Bláa lónið.
3. september 2002
X?
Ekki nokkurn nefna má
nýtan framboðslista.
En sumir kúka kerfið á
og kjósa húmanista.
24. maí 2002
Tilvistarkreppa
Fréttablaðið, Þri. 5. feb. 09:57
Hinrik prins í vanda
Viðtal sem birtist í síðdegisblaðinu B.T. við Hinrik prins á sunnudag hefur vakið gríðarlega athygli í Danmörku. Í viðtalinu lýsir Hinrik óánægju sinni með það að vera ýtt til hliðar í konungsfjölskyldunni og segist ósáttur við að vera í þriðja sæti goggunarröð konungsfjölskyldunnar.
Dýra krúnu drottning ber
Danaveldis.
Prinsinn Hinrik aðeins er
til undaneldis.
5. febrúar 2002
Könnun
Fréttablaðið, Þri. 29. jan. 07:50
Miklir yfirburðir R-listans og Ingibjargar Sólrúnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nýtur mun meira fylgis en Björn Bjarnason. 60,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust vilja sjá hana sem borgarstjóra eftir kosningar. 34,8 prósent vildu fá Björn sem borgarstjóra. Ingibjörg nýtur því meira fylgis en R-listinn en Björn minna fylgis en D-listinn.
Í töluverðu basli á Björn,
brösuglega gengur.
Imba situr út við Tjörn
ofurlítið lengur.
30. janúar 2002
Byrjar vel!
Morgunblaðið | Erlent | AFP | 05.12.2001 | 16:56
Verðandi forsætisráðherra Afganistans særðist af völdum sprengju

Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins sagði að Karzai hafi verið á fundi með sérsveitarhermönnum þegar 2.000 punda sprengju var varpað úr bandarískri B-52 sprengjuflugvél en hún lenti of nærri bækistöðum hermannanna.
Til forsætis hann fenginn var
úr flokki úrvalsdrengja.
En Karzai við Kandahar
Kaninn reyndi að sprengja.
7. desember 2001
Flótti
The Daily Telegraph, London: 23 Nov 2001 - By Marcus Warren in Maydan Shar
THIS WAS not their finest hour. Bloodied and bemused, Northern Alliance troops trudged back yesterday afternoon from a botched assault on the last Taliban stronghold near Kabul. Eleven tanks, plus a rocket launcher, were still blasting away at the enemy, but the foot soldiers had lost any stomach for a fight and were heading back to where they had begun the day, with very little to show for their efforts. Meira ...
Þeir sóttu fram í stórum stíl,
stríðsmenn þjáði ei ótti.
Svo kom talíbani á bíl,
þá brast í liðið flótti.
27. nóvember 2001
Afhjúpun

Mullah Ómar mæðir sú
hin mikla sókn að norðan.
En blæju af sér bregður nú
brosmild hringa skorðan.
21. nóvember 2001
Manneldisráð: Sælgæti er matur
Morgunblaðið | Fimmtudagur | 15. nóvember 2001 | Neytendur
Hollustufæði um 9% ódýrara en meðalfæði
MÁNAÐARSKAMMTUR úr matarkörfu sem sett er saman samkvæmt skilgreindum hollustumarkmiðum kostar að meðaltali rúmum 9% minna en matarkarfa sem miðuð er við meðalneyslu, samkvæmt athugun Manneldisráðs og ASÍ.
Mesti munurinn á körfunum tveimur er að í hollustukörfu er ekkert sælgæti eða gos en þess í stað meira af grænmeti, ávöxtum, mögrum mjólkurvörum og kornmat.
Þetta er snilli þykir mér,
það er alveg skýrt.
Grænmeti er gefins hér
því gottið er svo dýrt.
20. nóvember 2001
Að þekkja takmörk sín - targets/takmörk
Fréttablaðið, Sun. 11. nóv. 19:03
"Bandaríkin geta aldrei náð mér lifandi"
Þetta kemur fram í viðtali sem pakistanskur blaðamaður tók við bin Laden nýlega Í viðtalinu játar bin Laden í fyrsta skipti aðild sína að hryðjuverkunum á Bandaríkin. Tvíburaturnarnir voru lögmæt takmörk, þeir studdu efnahagsveldi Bandaríkjanna," sagði hann.
10 November 2001 Saturday 23 Shaban 1422 OBL: The Sept 11 attacks were not targeted at women and children. The real targets were America's icons of military and economic power.
World - Associated Press - updated 9:14 AM ET Nov 12 By CHRISTOPHER TORCHIA, Associated Press Writer In the interview, Bin Laden did not admit responsibility for the attacks in which terrorists steered passenger planes into the World Trade Center and the Pentagon
Eigi þjakar okkar sker
upplýsingavandi
því fjölmiðlarnir flytja hér
fréttir traustvekjandi.
12. nóvember 2001
Brandur minn
Fréttablaðið, Þri. 6. nóv. 15:52
Hugsanlegur miltisbrandur í Landsbankanum
Aðalbanki Landsbankans við Austurstræti hefur verið rýmdur. Lögregla vill ekki gefa neinar upplýsingar um hvað sé í gangi, en ekki mun um sprengjuhótun að ræða. Samkvæmt heimildum leikur grunur á Miltilsbrandi.
Hingað lítið rándýr rann
og reyndi að skapa klandur.
Frá Laden inn í Landsbankann
læddist Miltisbrandur.
7. nóvember 2001
Flótti

Hálfnaður í helli sinn
hann í kuflinn sprændi.
Undan rennur ósóminn,
eltir Sámur frændi.
26. október 2001
Hér og þar.

Íslendingar óttast póst,
aðrir himinloga.
Ógnin, það mun öllum ljóst,
er ekki af sama toga.
24. október 2001
Skotmörk?
Ég held að ýmsir hrökkvi í kút
og hræðist skjótan bana
því leyndarmálin leka út
um loftárásir Kana.
19. október 2001
Krossferð
Fréttablaðið, Mið. 17. okt. 13:09
Viðurkenna að hafa sprengt upp vöruskemmu
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur viðurkennt að hafa óvart sprengt upp vöruskemmu Rauða krossins í árásum á Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gær. Pentagon sagðist ekki hafa vitað að Rauði krossinn notaði vörukemmuna. Fram hefur komið að skemman var merkt Rauða krossinum í bak og fyrir og meðal annars á þaki ...
Kappar miklir kveiktu eld í krossi rauðum,
gengu af mörgum gumum dauðum
og gerðu aðra að mönnum snauðum.
17. október 2001
Miltisbrandari - Eins og alvöru fréttastofa í USA!
16. OKTÓBER
BRÉFPÓSTUR TIL RÚV Í RANNSÓKN
Verið er að rannsaka torkennilegt bréf á sýklafræðideild Landspítalans en það barst inn á Fréttastofu Útvarpsins í gærmorgun. Bréfið ... var nánast ómerkt ... Samkvæmt upplýsingum frá hraðsendingarfyrirtækinu hafa svipaðar sendingar áður borist til Ríkisútvarpsins og á fleiri staði í Reykjavík. Því má ætla að bréfið sé saklaust en rétt þótti að fara með gát vegna frétta af miltisbrandssendingum til fjölmiðla í Bandaríkjunum að undanförnu.
Miltisbrandari, frh.
Innlent | Morgunblaðið | 16/10 2001 11:16
Ekkert duft fannst í sendingunni til fréttastofu RÚV
Ekkert duft fannst í póstinum, en sýni var tekið úr póstinum til ræktunar. Búist er við því að það muni taka einn til tvo sólarhringa að fá úr því skorið hvort sendingin innihaldi miltisbrand.
RÚV 16.10.2001 12:10
"... reyndist innihaldið vera útdráttur úr handriti að kvikmyndinni Indiana Jones."
Að greina æ frá röngu rétt
reynist mönnum vandi
er semja svona flugufrétt
fulla af miltisbrandi.
16. október 2001
Infinite
Justice
Fréttablaðið, Þri. 9. okt. 06:23
Flugskeyti lenti á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna
Fjórir létust og einn slasaðist þegar flugskeyti lenti á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í morgun. Starfsfólk
skrifstofunnar hefur unnið við það að leita að jarðsprengjum í
Afganistan.
Á Kabúlhimni hátt má sjá
hefndarengil sannan.
Dæmalausir dátar þrá
að drepa mann og Annan.
9. október 2001
Menning
Fréttablaðið, Þri. 21. ágú. 06:17
Köstuðu af sér vatni yfir gangandi hátíðargesti
Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík á Menningarnóttinni og mikið um ölvun og skrílslæti. Lögregla hafði afskipti af fólki sem stóð upp á þaki við verslunina Zimsen í Hafnarstræti og væri að henda flöskum í fólk og kasta af sér þvagi.
Þegar fjöldinn fer á stjá
fagrar listir dafna.
Á menninguna mátti sjá
míga næturhrafna.
21. ágúst 2001
|
|