(sem heitir drykkjuvísa)
Lagboði: Kvæðið af stallinum KristíGott er að lifa á góðri stund
og gleðja sig á vinafund,
þykka upp sína leysa lund
í lífsins vatna brunni.
Fullur ber ég flöskustútinn að munni.
Þegar oss plagar þrautin verst
þynnkan ríkir og illt er flest
þá er nú kannski bara best
að byrja aftur frá grunni.
Fullur ber ég flöskustútinn að munni.
Óðinn situr í Valhöll vís,
vænan einherjar éta grís,
þeim ekki við því hugur hrís
að hýrgast á brjóstbirtunni.
Fullur ber ég flöskustútinn að munni.
Jesús breytti vatni í vín
verið hefur þar nauðsyn brýn,
barnatrúin það boðar mín
að brugga meistarinn kunni.
Fullur ber ég flöskustútinn að munni.